Heiðraðar fyrir að leika 100 A-landsleiki
Sara Björk Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir verða heiðraðar af UEFA fyrir leik Íslands og Þýskalands fyrir að hafa leikið 100 A-landsleiki.
Þær verða heiðraðar sérstaklega áður en þjóðsöngvarnir verða leiknir fyrir leikinn á morgun, föstudag, og vill KSÍ hvetja vallargesti til að mæta tímanlega og hylla leikmennina.
KSÍ hafði þegar heiðrað leikmennina fyrir að leika 100 A-landsleiki, en það var gert á 74. ársþingi sambandsins sem haldið var árið 2020.
Sara Björk Gunnarsdóttir er fædd árið 1990 og er því 34 ára gömul á þessu ári. Hennar fyrsti A-landsleikur var gegn Slóveníu árið 2007 í undankeppni EM 2009. Á ferli sínum með A-landsliðinu lék hún 145 mörk og skoraði í þeim 24 mörk, en hún var lengi fyrirliði liðsins.
Hallbera Guðný Gísladóttir var á 22. aldursári þegar hún lék sinn fyrsta A-landsleik árið 2008, gegn Póllandi á Algarve Cup. Hallbera, sem er fædd 1986, lék 131 landsleik fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim 3 mörk.