Íslensku liðin hefja leik í Evrópukeppnum félagsliða
Íslensku liðin hefja í vikunni leik í Evrópukeppnum félagsliða.
Víkingur R. hefur leik þegar liðið mætir Shamrock Rovers í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu á þriðjudag. Leikurinn fer fram á Víkingsvelli og hefst hann kl. 18:45. Liðin mætast svo viku síðar á Tallaght Stadium í Dublin, Írlandi.
Sigurvegari viðureignarinnar mætir Sparta Prag í næstu umferð, en það lið sem tapar færist yfir í Sambandsdeild Evrópu og mætir þar FK Borac Banja Luka frá Bosníu og Hersegóvínu eða KF Egnatia frá Albaníu.
Forkeppni Sambandsdeildar Evrópu hefst á fimmtudag og verða þrjú íslensk lið þar í eldlínunni. Breiðablik mætir GFK Tikves frá Norður Makedóníu ytra og hefst sá leikur kl. 18:30. Sigurvegari viðureignarinnar mætir FC Drita frá Kosóvó í næstu umferð.
Valur mætir Vllaznia frá Albaníu á Valsvelli kl. 19:00 og mun sigurvegari viðureignarinnar mæta St Mirren FC frá Skotlandi í næstu umferð
Stjarnan mætir Linfield frá Norður Írlandi á Samsungvellinum kl. 19:00 og mun sigurvegari viðureignarinnar mæta Bala Town FC frá Wales eða Paide Linnameeskond frá Eistlandi í næstu umferð.