Dregið í Sambandsdeildina
Dregið hefur verið í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Valur mætir KF Vllaznia frá Albaníu og spilar fyrri leikinn á heimavelli.
Stjarnan mætir Linfield FC frá Norður Írlandi og spilar fyrri leikinn á heimavelli.
Breiðablik mætir GFK Tikves frá Norður Makedóníu og spilar fyrri leikinn á útivelli.
Leikirnir fara fram 11. og 18. júlí næstkomandi, en dregið verður í aðra umferð forkeppninnar á miðvikudag.