• mán. 03. jún. 2024
  • Landslið
  • A kvenna

Ísland mætir Austurríki á þriðjudag

A kvenna mætir Austurríki á þriðjudag í undankeppni EM 2025.

Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst hann kl. 19:30. Miðasala á leikinn er í fullum gangi á tix.is.

Miðasala

Liðin mættust í Ried Im Innkreis á föstudag og endaði sá leikur með 1-1 jafntefli, en Glódís Perla Viggósdóttir skoraði mark Íslands af vítapunktinum. Þýskaland er efst í riðlinum með fullt hús stiga eftir þrjá leiki, en Ísland og Austurríki koma þar á eftir með fjögur stig bæði. Pólland er svo neðst án stiga. Tvö efstu liðin fara beint í lokakeppni EM 2025, en hin tvö í umspil.