Áhersluatriði dómaranefndar 2024
Dómaranefnd KSÍ gefur út áhersluatriði fyrir hvert keppnistímabil. Áhersluatriðin eru kynnt á sérstökum fundum sem haldnir með fulltrúum félaga fyrir hvert keppnistímabil. Á fundina eru boðaðir fulltrúar leikmanna og þjálfara frá hverju félagi og langflest félög senda sína fulltrúa á þessa fundi. Fundirnir í ár voru haldnir 4. apríl.
Áhersluatriði dómaranefndar KSÍ byggja á knattspyrnulögunum og nýjustu breytingum sem Alþjóðanefndin (IFAB) hefur gert á lögunum og fyrirmælum um túlkun þeirra.
- Knattspyrnulögunum 2024/25(og breytingum á þeim 2024).
- Hagnýtum leiðbeiningum fyrir dómarateymi 2024/25.
- Framkvæmd leikja – upplýsingar fyrir dómara 2024.
- Reglugerðum móta 2024.
- Leiðbeiningum um samstarf dómara og aðstoðardómara.
- Leiðbeiningum um stjórnun í boðvangi.
- Leiðbeiningum um samræmda notkun samskiptabúnaðar.
Mótmæli gagnvart dómurum
- Hefur uppi mótmæli með orðum eða látæði t.d. sveiflar höndum.
- Ögrandi hegðun í garð dómara - áminna skal fyrir slíka hegðun
Hópögranir eða hópast um dómarann
- Við hópögranir ber að lágmarki að sýna einum leikmanni úr hvoru liði gula spjaldið.
- Gerist leikmenn sekir um að hópast um dómarann við mótmæli eða til þess að reyna að hafa áhrif á ákvörðun hans (t.d. með því að heimta gult eða rautt spjald á mótherja) ber dómaranum að áminna a.m.k. einn þeirra sem þannig haga sér (oftast þann sem hefur sig mest í frammi). Því til viðbótar ber að áminna hvern þann leikmann sem leggur á sig langa leið til þess að koma mótmælum sínum á framfæri.
Óíþróttamannsleg hegðun (áminning)
- Sparka/kasta bolta burt eftir að leikur hefur verið stöðvaður.
- Taka bolta og fara með hann.
- Fara fyrir og eða hindra töku aukaspyrnu.
- Leiktafir.
Boðvangur
Taka ber á allri ósæmilegri/óábyrgri hegðun þeirra sem eru á tæknisvæðinu. Sama hvort að um sé að ræða varamenn eða aðila úr starfsteymi liðanna. Einungis einum aðila er heimilt að standa fram í boðvangi í einu og þá einungis til að koma á framfæri leikrænum leiðbeiningum til sinna leikmanna.