Staðfest niðurröðun í 1. umferð Mjólkurbikars kvenna
KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja í 1. umferð Mjólkurbikars kvenna og fara leikirnir fram dagana 20.-23. apríl. Önnur umferð keppninnar verður síðan leikin dagana 30. apríl og 1. maí og strax að loknum leikjum 1. umferð má sjá hvaða lið mætast í 2. umferð.
Félög eru vinsamlegast beðin um að athuga að nokkrum leikjum hefur nýlega verið breytt frá fyrri drögum. Ef breytingar verða gerðar á leikjum mótsins hér eftir, verður það tilkynnt sérstaklega.