Mjólkurbikar karla heldur áfram á miðvikudag
Öllum 23 leikjunum í 1. umferð Mjólkurbikars karla er lokið.
Önnur umferð hefst á miðvikudag þegar Víkingur Ó. tekur á móti Keflavík. Hinir 19 leikirnir fara fram dagana 12. - 14. apríl.
Mánudaginn 15. apríl verður svo dregið í 32-liða úrslit þar sem liðin 12 sem leika í Bestu deildinni bætast við keppnina.
Víkingur R. er ríkjandi bikarmeistari.