A kvenna - Ísland mætir Þýskalandi á þriðjudaginn
Ísland mætir Þýskalandi á þriðjudag í öðrum leik liðsins í undankeppni EM 2025.
Leikurinn fer fram á Tivoli í Aachen og hefst hann kl. 16:10 að íslenskum tíma. Bein útsending verður frá leiknum á RÚV.
Ísland vann 3-0 sigur gegn Póllandi í fyrsta leik sínum í undankeppninni á meðan Þýskaland vann 3-2 sigur gegn Austurríki, eftir að hafa lent 0-2 undir.
Íslenska liðið æfði á leikvellinum í dag og eru allir leikmenn tilbúnir í slaginn á þriðjudag.
Það er ekki langt síðan þjóðirnar mættust síðast, en þær voru saman í riðli í Þjóðadeild UEFA sem leikin var síðastliðið haust. Þýskaland vann fyrri leikinn ytra 4-0 og þann seinni á Laugardalsvelli 2-0.
Leikurinn á þriðjudag verður sá nítjandi sem þjóðirnar leika, Ísland hefur unnið einn og Þýskaland 17.