Héraðsdómaranámskeið 11. apríl
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ (3. hæð) fimmtudaginn 11. apríl kl. 17:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara og veitir dómurum réttindi til að starfa á leikjum í meistaraflokki.
Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur. Einungis þeir sem lokið hafa byrjendanámskeiði hafa rétt á því að sitja námskeiðið. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis. Lögð er áhersla á hagnýtar hliðar dómgæslunnar.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is.
Mynd: Mummi Lú.