Stórsigur hjá U16 karla gegn Færeyjum
U16 karla vann 6-0 stórsigur gegn Færeyjum á UEFA Development Tournament á Gíbraltar í dag, laugardag.
Tómas Óli Kristjánsson og Björgvin Brimi Andrésson skoruðu tvö mörk hvor, Sölvi Snær Ásgeirsson skoraði eitt og eitt var sjálfsmark Færeyinga.
Var þetta annar sigur liðsins á mótinu en áður unnu þeir 4-0 sigur gegn Gíbraltar.
Lokaleikur strákanna á mótinu verður gegn Litháen, þriðjudaginn 19. mars klukkan 09:00.