Leikið á Kópavogsvelli gegn Póllandi
Mynd - Hulda Margrét Óladóttir
Leikur A landslið kvenna gegn Póllandi 5. apríl verður leikinn á Kópavogsvelli.
Þetta er fyrsti leikur liðsins í undankeppni EM 2025 og hefst hann kl. 16:45. Bein útsending verður frá leiknum á RÚV.
Upplýsingar um miðasölu á leikinn verða kynntar fljótlega.