2308. fundur stjórnar KSÍ - 28. febrúar 2024
2308. fundur stjórnar Knattspyrnusambands Íslands var haldinn miðvikudaginn 28. febrúar 2024 og hófst kl. 16:00. Fundurinn var haldinn á Laugardalsvelli.
Mættir stjórnarmenn: Þorvaldur Örlygsson formaður, Halldór Breiðfjörð Jóhannsson, Helga Helgadóttir, Ingi Sigurðsson, Pálmi Haraldsson, Tinna Hrund Hlynsdóttir, Unnar Stefán Sigurðsson, Sveinn Gíslason og Þorkell Máni Pétursson.
Mættir starfsmenn: Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri. Þá tóku Jörundur Áki Sveinsson sviðsstjóri knattspyrnusviðs og Haukur Hinriksson lögfræðingur sæti á fundinum undir dagskrárlið 4.