KSÍ auglýsir eftir verkefnastjóra
KSÍ óskar eftir að ráða öflugan einstakling í tímabundið starf verkefnastjóra í samskiptadeild á skrifstofu sambandsins. Mikilvægt er að viðkomandi hafi hafa brennandi áhuga á knattspyrnu og þekkingu á fyrirkomulagi mótamála hjá KSÍ. Kostur er ef viðkomandi hefur starfað fyrir íþróttahreyfinguna.
Tímabil:
- 1. maí 2024 – 1. maí 2026.
Verkefni:
- Umsjón með innleiðingu nýs móta- og upplýsingakerfis (Comet - Competition Management Expert System) fyrir KSÍ og aðildarfélög ásamt samhliða innleiðingu á nýrri vefsíðu KSÍ.
- Samskipti við þjónustuaðila (Comet) og notendur (fulltrúa KSÍ og fulltrúa aðildarfélaga).
- Fræðsla til notenda (fulltrúa KSÍ og fulltrúa aðildarfélaga) og þjálfun í notkun Comet.
- Stuðningur við notendur að innleiðingu lokinni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Gott vald á íslensku og ensku.
- Hæfni til framsetningar og greiningar á ýmsum gögnum.
- Góð þekking á forritum Office og hvers kyns tölvuvinnslu.
- Góð samskiptafærni, skipulagshæfni, frumkvæði og nákvæmni í starfi.
- Reynsla af innleiðingu tölvukerfa er kostur.
Nánari upplýsingar veitir Ómar Smárason deildarstjóri samskiptadeildar KSÍ (510-2900 / omar@ksi.is).
Umsóknum ásamt sakarvottorði skal skilað með tölvupósti til omar@ksi.is eigi síðar en 20. mars næstkomandi.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eigi síðar en 1. maí.