Þorvaldur Örlygsson er nýr formaður KSÍ
Þorvaldur Örlygsson er nýr formaður KSÍ. Kosið var rétt í þessu á 78. ársþingi KSÍ í íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal.
Í framboði voru þeir Guðni Bergsson, Vignir Már Þormóðsson og Þorvaldur Örlygsson.
Um kosningu formanns KSÍ stendur í grein 17.6 í lögum KSÍ:
Til þess að ná kjöri sem formaður KSÍ, þarf meirihluta greiddra atkvæða. Náist ekki meirihluti við fyrstu kosningu, skal kjósa á ný, bundinni kosningu, um þá tvo menn, sem flest atkvæði hlutu. Ræður þá einfaldur meirihluti atkvæða. Verði þeir jafnir skal kjósa á ný með sama hætti og verði þeir enn jafnir, ræður hlutkesti.
Í fyrstu umferð kosninganna deildust atkvæðin svona niður á frambjóðendurna:
- Guðni Bergsson 20,83% atkvæða - 30 atkvæði
- Vignir Már Þormóðsson 40,97% atkvæða - 59 atkvæði
- Þorvaldur Örlygsson 38,19% atkvæða - 55 atkvæði
Í annari umferð kosninganna, sem var á milli Vignis og Þorvaldar, deildust atkvæðin þannig að Þorvaldur Örlygsson fékk 51,72% atkvæða (75 atkvæði) og Vignir Már Þormóðsson fékk 48,28% atkvæða (70 atkvæði).
Því er ljóst að Þorvaldur Örlygsson mun sitja í formannsstól KSÍ næstu tvö ár hið minnsta.