A kvenna mætir Serbíu á föstudag
A landslið kvenna mætir Serbíu á föstudag í fyrri leik sínum í umspili um áframhaldandi veru í A-deild í undankeppni EM 2025.
Leikurinn hefst klukkan 15:00 og verður hann í beinni útsendingu á RÚV.
Síðari leikurinn fer fram á Kópavogsvelli þann 27. febrúar klukkan 14:30. Miðasala er í fullum gangi á tix.is
Samanlagður árangur úr þessum tveimur leikjum úrskurðar um það hvort liðið leiki á A-deild undankeppni EM 2025.