Tap í fyrsta leik hjá U17 kvenna
U17 kvenna tapaði 0-1 gegn Portúgal í fyrsta leik sínum í seinni umferð undankeppni EM 2024.
Portúgal skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks og tap því staðreynd. Ísland mætir næst Finnlandi á laugardag og hefst sá leikur kl. 16:00 og verður í beinni útsendingu á Sjónvarpi Símans.
Finnland vann 5-0 sigur gegn Kosóvó í dag og verður leikurinn því einkar mikilvægur á laugardaginn.