Umboðsmannapróf í maí
Til þess að gerast skráður umboðsmaður hjá FIFA, þarf að standast sérstakt umboðsmannapróf. Vakin er athygli á því að frestur til þess að skrá sig á fyrsta umboðsmannapróf ársins 2024 rennur út sunnudaginn 31. mars og fer prófið fram í höfuðstöðvum KSÍ miðvikudaginn 22. maí.
Til að skrá sig í prófið þarf að stofna aðgang inn á FIFA kerfi fyrir umboðsmenn og stofna skráningarbeiðni fyrir prófið. Slóð á kerfið má finna hér að neðan:
FIFA kerfi fyrir umboðsmenn
Skrifstofa KSÍ mun innheimta próftökugjald að upphæð kr. 26.500,- sem þarf að greiða áður en próf eru þreytt.
Frekari gögn til skýringa eru aðgengileg inn á skráningarkerfi FIFA, ásamt lesefni fyrir prófið.
Tengiliður hjá KSÍ vegna skráningar umboðsmanna og töku umboðsmannaprófs er Fannar Helgi Rúnarsson (fannar@ksi.is).