Tillögukynning og málþing dagana fyrir ársþing
Ársþing KSÍ fer fram þann 24. febrúar næstkomandi og verður að þessu sinni haldið í íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal, Reykjavík.
Þriðjudaginn 20. febrúar (seinnipartur dags) verður kynning á þeim tillögum sem liggja fyrir þinginu og verður sú kynning eingöngu rafræn yfir vefinn í gegnum Teams.
Málþing verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ að Laugardalsvelli föstudaginn 23. febrúar (seinnipartur dags). Dagskráin er í vinnslu og verður kynnt um leið og hún skýrist nákvæmlega (efnistök og fyrirlesarar). Streymt verður frá málþinginu þannig að þau sem ekki komast á staðinn geti fylgst með.