Hæfileikamótun stúlkna 7. og 10. janúar
Á fimmta tug leikmanna frá 10 félögum hafa verið valdir til að taka þátt í æfingum í Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir stúlkur á höfuðborgarsvæðinu. Æfingarnar fara fram í knatthúsi ÍR í Neðra-Breiðholti sunnudaginn 7. janúar og í Skessunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 10. janúar undir stjórn Magnúsar Arnar Helgasonar þjálfara í Hæfileikamótun.