Knattspyrnan áberandi í kjörinu
Knattspyrnan er áberandi í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á þeim sem sköruðu fram úr á íþróttasviðinu á árinu 2023. Samtökin hafa birt nöfn þeirra einstaklinga og liða sem koma til greina í kjörinu í ár. Kjöri Íþróttamanns ársins verður lýst á Hilton fimmtudagskvöldið 4. janúar 2024.
- Af tíu efstu í kjöri til íþróttamanns ársins koma þrjú úr knattspyrnunni, þau Glódís Perla Viggósdóttir, Jóhann Berg Guðmundsson og Sveindís Jane Jónsdóttir.
- Af þremur efstu sem koma til greina sem þjálfarar ársins kemur einn úr knattspyrnunni, Arnar Gunnlaugsson þjálfara Íslands- og bikarmeistara Víkings R. í meistaraflokki karla.
- Af þremur efstu sem koma til greina sem lið ársins eru tvö knattspyrnulið, meistaraflokkslið karla og kvenna hjá Víkingi R. Karlalið Víkings varð bæði Íslands- og bikarmeistari á árinu og kvennalið Víkings varð bikarmeistari auk þess að vinna sigur í næst efstu deild.
Tíu efstu í kjörinu á íþróttamanni ársins 2023 (stafrófsröð)
- Andrea Kolbeinsdóttir, frjálsíþróttir
- Anton Sveinn McKee, sund
- Elvar Már Friðriksson, körfubolti
- Gísli Þorgeir Kristjánsson, handbolti
- Glódís Perla Viggósdóttir, fótbolti
- Jóhann Berg Guðmundsson, fótbolti
- Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sund
- Sóley Margrét Jónsdóttir, kraftlyftingar
- Sveindís Jane Jónsdóttir, fótbolti
- Thelma Aðalsteinsdóttir, fimleikar
Þrír efstu í kjörinu um þjálfara ársins (stafrófsröð)
- Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings í fótbolta
- Pavel Ermolinski, þjálfari karlaliðs Tindastóls í körfubolta
- Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennalandsliðs Noregs í handbolta
Þrjú efstu í kjörinu um lið ársins (stafrófsröð)
- Tindastóll, meistaraflokkur karla í körfubolta
- Víkingur, meistaraflokkur karla í fótbolta
- Víkingur, meistaraflokkur kvenna í fótbolta