Knattspyrnuþing 2024 í Úlfarsárdal
78. ársþing KSÍ verður haldið í Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal, Reykjavík 24. febrúar 2024.
Í samræmi við grein 11. í lögum KSÍ skulu tillögur að laga- og/eða reglugerðarbreytingum sem óskað er eftir að teknar verði fyrir á knattspyrnuþingi, sendar stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þingið eða í síðasta lagi miðvikudaginn 24. janúar nk.
Þingið verður sett kl. 11:00 laugardaginn 24. febrúar og er gert ráð fyrir að því ljúki um kl. 17:00 sama dag.
Nánari dagskrá ásamt upplýsingum verður send sambandsaðilum síðar.