Úrslitakeppnin í Futsal í janúar
Helgina 6. og 7. janúar verður úrslitakeppnin í Futsal leikin (mfl karla) og fer hún fram í Safamýri. Þátttökuliðin eru fjögur - leikin eru undanúrslit og svo úrslitaleikur. Í undanúrslitum mætast annars vegar Ísbjörninn og Árbær, hins vegar sameiginlegt lið Leiknis/KB og sameiginlegt lið Aftureldingar/ Álafoss/Hvíta-Riddarans.
Í Futsal er leikið innanhúss á handboltavelli og spilað er á handboltamörk. Í hvoru liði eru 5 leikmenn og þar af 1 markvörður. Leiktíminn er 2x20 mínútur og er klukkan stöðvuð þegar boltinn er ekki í leik.