Tap í lokaleik Breiðabliks
Breiðablik tapaði lokaleik sínum í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar á fimmtudagskvöld. Blikar mættu úkraínska liðinu Zorya Luhansk og höfðu Úkraínumennirnir betur með fjórum mörkum gegn engu. Zorya leiddi með þremur mörkum í hálfleik og innsiglaði sigurðinn með því fjórða í síðari hálfleik.
Breiðablik lýkur því keppni í Sambandsdeildinni þetta árið án stiga, í þessari frumraun íslensks félagsliðs í riðlakeppni Evrópumóts félagsliða. Maccabi Tel Aviv hafnaði í efsta sæti riðilsins með 15 stig og Gent í 2. sæti með 13 stig. Þá kemur Zorya með 7 stig og Breiðablik loks neðst.