Breiðablik mætir Zorya Luhansk í Sambandsdeildinni
Breiðablik mætir Zorya Luhansk í lokaleik sínum í Sambandsdeild Evrópu í dag, fimmtudag. Leikurinn hefst klukkan 20:00 og verður hann í beinni útsendingu á Vodafone Sport.
Leikurinn verður spilaður í Lublin í Póllandi.
Breiðablik er stigalaust á botni riðilsins á meðan Zorya Luhansk er í þriðja sæti með fjögur stig.