Mætum Serbíu í umspili Þjóðadeildarinnar
A landslið kvenna mætir Serbíu í tveimur umspilsleikjum um sæti í A deild Þjóðadeildarinnar. Dregið var í höfuðstöðvum UEFA í hádeginu í dag, mánudag.
Fyrri leikurinn fer fram í Serbíu og síðari leikurinn er heimaleikur Íslands en ekki er ljóst hvar hann verður spilaður. Leikirnir fara fram á tímabilinu 21. - 28. febrúar 2024.