Naumt tap á Kópavogsvelli
Breiðablik tapaði naumlega gegn Maccabi Tel Aviv frá Ísrael þegar liðin mættust í Sambandsdeild UEFA á fimmtudag. Eins og kunnugt er fór leikurinn fram á Kópavogsvelli samkvæmt ákvörðun UEFA um að ekki yrði leikið á Laugardalsvelli vegna vallaraðstæðna og vegna birtuskilyrða var ákveðið að leikurinn færi fram kl. 13:00.
Jafnræði var með liðunum allan tímann og Blikar hefði hæglega getað fengið stig úr leiknum. Fyrsta mark leiksins var ísraelskt og kom á 35. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. Gísli Eyjólfsson jafnaði metin fyrir heimamenn um miðbik seinni hálfleiks en gestirnir skoruðu sigurmark á 82. mínútu og þar við sat.
Breiðablik er enn án stiga eftir fimm umferðir. Lokaumferð riðilsins verður leikin 14. desember og þá mætir Breiðablik úkraínska liðinu Zorya Luhansk.