3-0 sigur hjá U19 karla gegn Eistlandi
U19 karla vann 3-0 sigur gegn Eistlandi í síðasta leik liðsins í fyrstu umferð undankeppni EM 2024.
Mörkin þrjú komu öll í seinni hálfleik, Benoný Breki Andrésson skoraði tvö og Ágúst Orri Þorsteinsson eitt.
Ísland endar í þriðja sæti riðilsins og kemst því ekki beint í milliriðla.