U21 karla - hópurinn fyrir leik gegn Wales
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hóp sem mætir Wales í undankeppni EM 2025.
Leikurinn fer fram fimmtudaginn 16. nóvember á Rodney Parade í Newport og hefst hann kl. 18:00.
Ísland er í efsta sæti riðilsins með sex stig eftir tvo leiki á meðan Wales er í öðru sæti með fimm stig eftir þrjá leiki. Ísland vann 2-1 sigur gegn Tékklandi í sínum fyrsta leik í undankeppninni og svo 1-0 sigur gegn Litháen. Wales er búið að vinna Litháen og gera jafntefli við Danmörku og Tékkland.
Hópurinn
Adam Ingi Benediktsson - IFK Göteborg - 4 leikir
Ólafur Kristófer Helgason - Fylkir - 3 leikir
Andri Fannar Baldursson - IF Elfsborg - 16 leikir, 1 mark
Kristall Máni Ingason - SönderjyskE - 15 leikir, 7 mark
Ólafur Guðmundsson - FH - 8 leikir
Danijel Dejan Djuric - Víkingur R. - 7 leikir, 1 mark
Jakob Franz Pálsson - KR - 7 leikir
Óli Valur Ómarsson - IK Sirius - 7 leikir, 1 mark
Valgeir Valgeirsson - Örebro SK - 7 leikir
Ísak Andri Sigurgeirsson - IFK Norrköping - 6 leikir
Logi Hrafn Róbertsson - FH - 6 leikir
Ari Sigurpálsson - Víkingur R. - 4 leikir, 1 mark
Davíð Snær Jóhannsson - FH - 4 leikir, 1 mark
*Eyþór Aron Wöhler - Breiðablik - 4 leikir, 1 mark
Óskar Borgþórsson - Sogndal Fotball - 4 leikir
*Andri Lucas Guðjohnsen - Lyngby Fodbold - 3 leikir, 1 mark
Anton Logi Lúðvíksson - Breiðablik - 3 leikir
Eggert Aron Guðmundsson - Stjarnan - 3 leikir
Hlynur Freyr Karlsson - Valur - 3 leikir
Hilmir Rafn Mikaelsson - Venezia - 2 leikir
*Mikael Egill Ellertsson - Venezia - 2 leikir
*Bjarni Guðjón Brynjólfsson - Valur - 1 leikur
*Tvær breytingar voru gerðar á upprunalegum hóp U21 karla. Andri Lucas Guðjohnsen og Mikael Egill Ellertsson voru kallaðir inn í hóp A karla. Í stað þeirra komu Eyþór Aron Wöhler og Bjarni Guðjón Brynjólfsson inn í hóp U21 karla.