U19 kvenna mætir Belarús
U19 lið kvenna mætir Belarús í sínum öðrum leik í fyrstu umferð undankeppni EM 2024.
Leikurinn hefst klukkan 13:00 og verður hægt að fylgjast með beinni textalýsingu á vef UEFA sem og beinu streymi.
Bein textalýsing á vef UEFA
Youtube síða Albaníu þar sem leikurinn verður í beinu streymi
Íslenska liðið vann frábæran 6-2 sigur á Skotlandi síðastliðinn þriðjudag og mætir Serbíu í loka leik umferðarinnar á mánudag.Það lið sem endar í neðsta sæti riðilsins fellur niður í B deild fyrir seinni umferð riðlakeppninnar sem fer fram í vor.
Þau lið sem enda í fyrsta sæti sinna riðla í seinni umferðinni fara svo áfram í lokakeppnina.
Riðill Íslands á heimasíðu KSÍ