Árlegur formanna- og framkvæmdastjórafundur 25. nóvember
Árlegur fundur formanna og framkvæmdastjóra aðildarfélaga KSÍ verður haldinn laugardaginn 25. nóvember næstkomandi í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli (3. hæð). Gert er ráð fyrir að fundurinn hefjist kl. 11:00 og eru fulltrúar aðildarfélaga beðnir um að taka daginn frá.
Dagskrá er í undirbúningi og verður birt á vef KSÍ og send aðildarfélögum þegar nær dregur. Ef aðildarfélög KSÍ hafa ábendingar um fundarefni eru þau hvött til þess að senda tölvupóst á media@ksi.is.