• þri. 17. okt. 2023
  • Landslið
  • U17 kvenna

U17 kvenna - Ísland mætir Noregi á miðvikudag

U17 kvenna mætir Noregi á miðvikudag í síðasta leik sínum í fyrstu umferð undankeppni EM 2024.

Leikurinn hefst kl. 10:00, en leikið er í Póllandi. Hægt verður að fylgjast með beinni textalýsingu á vef UEFA frá leiknum.

Vefur UEFA

Pólland er í efsta sæti riðilsins með sex stig, en Ísland og Noregur koma næst með þrjú stig. Írland er neðst án stiga. Það lið sem endar í neðsta sæti riðilsins fellur niður í B deild fyrir seinni umferð undankeppninnar sem leikin verður í vor.