• sun. 15. okt. 2023
  • Landslið
  • U17 kvenna

U17 kvenna - flottur sigur gegn Írlandi

U17 kvenna vann 3-1 sigur gegn Írlandi í öðrum leik liðsins í undankeppni EM 2024.

Írland leiddi 1-0 í hálfleik, en Ísland kom frábærlega út í seinni hálfleik og skoraði þrjú mörk og vann góðan sigur. Hrefna Jónsdóttir, Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir skoruðu mörk Íslands.

Ísland mætir Noregi á miðvikudag í síðasta leik sínum í riðlinum, en Noregur er einnig með þrjú eftir að hafa unnið 1-0 sigur gegn Írlandi í fyrsta leik.