Breiðablik tapaði gegn Zorya Luhansk
Mynd: Mummi Lú
Breiðablik tók á móti Zorya Luhansk frá Úkraínu í öðrum leik sínum í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar á fimmtudag. Gestirnir unnu 0-1 sigur gegn Blikum.
Igor Gorbach skoraði mark gestanna á 35. mínútu. Heimamenn fengu nokkur tækifæri í síðari hálfleik til að jafna metin en boltinn fór ekki í netið.
Næsti leikur Breiðabliks í Sambandsdeild Evrópu er útileikur gegn Gent frá Belgíu þann 26. október.