Bestar og efnilegastar í Bestu deild kvenna
Í dag, föstudag, fer fram lokaumferðin í Bestu deild kvenna þar sem Valur tekur á móti Íslandsmeistaraskildinum. Eins og undanfarin ár velja leikmenn í Bestu deildinni besta og efnilegasta leikmann deildarinnar ásamt því að velja besta dómarann. Í fyrra var bryddað upp á þeirri nýjung að afhjúpa hvaða fjórir leikmenn voru efstir í kjörinu áður en lokaumferðin fer fram og ákveðið var að gera það einnig í ár. Hér að neðan má finna nöfn þeirra leikmanna sem voru efstir eftir að kosningu lauk (nöfn leikmanna eru í stafrófsröð). Öll verðlaunin verða afhent í aðdraganda leikja kvöldsins.
Besti leikmaður Bestu deildar kvenna (efstu fjórar)
- Arna Sif Ásgrímsdóttir - Valur
- Bryndís Arna Níelsdóttir - Valur
- Katherine Amanda Cousins - Þróttur
- Sandra María Jessen - Þór/KA
Efnilegasti leikmaður Bestu deildar kvenna (efstu fjórar)
- Fanney Inga Birkisdóttir - Valur
- Ísabella Sara Tryggvadóttir - Valur
- Katla Tryggvadóttir - Þróttur
- Sædís Rún Heiðarsdóttir - Stjarnan
Verðlaun til besta og efnilegasta leikmanns efstu deildar kvenna, „Flugleiðahornin“, voru fyrst afhent 1994. Þá var Katrín Jónsdóttir valin efnilegasti leikmaðurinn og Margrét Ólafsdóttir valin besti leikmaður deildarinnar.