Jóhann og Ragnar dæma í Noregi
Laugardaginn 30. september munu Jóhann Ingi Jónsson og Ragnar Þór Bender dæma leik Mjondalen og Skeid í næst efstu deild karla í Noregi. Jóhann Ingi sem dómari og Ragnar Þór sem aðstoðardómari.
Leikurinn er liður í Norrænu dómaraskiptunum.