U19 karla: Tveggja marka tap gegn Portúgal
U19 landslið karla tapaði í dag sunnudag gegn Portúgal með einu marki gegn þremur á æfingamóti sem haldið er í Slóveníu. Um var að ræða annan leik íslenska liðsins í mótinu. Ísland vann eins marks sigur á Kirgistan á miðvikudag og mætir heimamönnum í Slóveníu á þriðjudaginn.
Íslenska liðið veitti því portúgalska mikla keppni en þeir portúgölskaleiddu með tveimur mörkum í hálfleik. Benóný Breki Andrésson minnkaði muninn fyrir Ísland á 57. mínútu, en Portúgal innsiglaði sigurinn með þriðja marki liðsins á 64. mínútu.