U15 karla - Tap gegn Ungverjalandi
U15 lið karla tók á móti Ungverjalandi á Selfossi í dag, föstudag. Gestirnir höfðu betur og unnu 0-2 sigur.
Var þetta annar leikur á milli liðanna í vikunni. Ísland hafði betur í fyrri leiknum 2-1.
Lið Íslands er skipað leikmönnum sem fæddir eru árið 2008 og eru þeir því að stíga sín fyrstu skref í yngri landsliðum Íslands.
Þjálfari liðsins er Þórhallur Siggeirsson.