• fim. 31. ágú. 2023
  • U15 karla
  • Landslið

U15 karla - Sigur á Ungverjum

U15 lið karla mætti Ungverjalandi í æfingaleik á Selfossi. Bæði lið byrjuðu af fullum krafti og sköpuðu sér þó nokkur færi snemma leiks, það voru svo Ungverjar sem komust fyrst yfir um miðjan fyrri hálfleik. Íslenska liðið lét þetta þó ekki stöðva sig og jöfnuðu leikinn á 45. mínútu með marki frá Viktori Bjarna Daðasyni. Seinni hálfleikur var mjög jafn og var það augljóst að bæði lið ætluðu sér að bæta við mörkum, rétt fyrir leikslok skoraði Gunnar Orri Olsen glæsilegt mark og tryggði þannig íslenska liðinu 2-1 sigur.

Liðin mætast aftur á Selfossi föstudaginn 1. september klukkan 12:00. Leikurinn verður í beinu streymi á youtube rás Selfoss TV.