Fótboltafjör fyrir iðkendur með fatlanir
Laugardaginn 23. september munu KSÍ, Special Olympics á Íslandi og Íþróttafræðideild Háskóla Íslands standa fyrir fótboltafjöri fyrir börn og fullorðna með fatlanir. Fótboltafjörið fer fram í Miðgarði í Garðabæ á milli 14:00 - 16:00.
Boðið verður upp á skemmtilegar þrautir og leiki sem hentar öllum, óháð getu, aldri og þekkingu á fótbolta.
Gott væri að þátttakendur séu skráðir fyrir fram en skráning fer fram hér.
Nánari upplýsingar eða fyrirspurnir veitir Sóley Guðmundsdóttir á soley@ksi.is.