Búnaður til knattspyrnuiðkunar fyrir flóttafólk
Samræmd móttaka flóttafólks í Reykjavík óskar eftir búnaði til knattspyrnuiðkunar fyrir flóttabörn.
Reykjavíkurborg mun taka á móti 1500 manns á flótta á þessu ári.
KSÍ vill hvetja alla þá sem mega sjá af búnaði til knattspyrnuiðkunar, eins og takkaskóm, legghlífum, markmannshönskum og annars konar búnaði, að hafa samband við Suðurmiðstöð Mjódd í síma 411-1300.