Miðasala á leik Þýskalands og Íslands í Bochum
Ísland mætir Þýskalandi á Vonovia Ruhrstadion í Bochum í Þýskalandi 26. september klukkan 18:15 í Þjóðadeild kvenna.
Hægt er að tryggja sér miða á leikinn á svæði sem hefur verið tekið frá fyrir íslenska stuðningsmenn. Miðasalan fer fram á heimasíðu þýska knattspyrnusambandsins.