• mán. 21. ágú. 2023
  • Landslið

U17 karla - Tap í síðasta leik

U17 karla mætti Ungverjalandi í loka leik sínum á Telki Cup, sem fram fór í Ungverjalandi, á laugardag. Heimamenn unnu 3-0 sigur.

Íslenska liðið spilaði þrjá leiki á mótinu, gegn Króatíu, Úsbekistan og Ungverjalandi. Þeir unnu 2-0 sigur gegn Úsbekistan en lutu í lægra haldi fyrir Króatíu og sem fyrr segir Ungverjalandi.

Lúðvík Gunnarsson er þjálfari liðsins.