Íslenskir dómarar í Sambandsdeild Evrópu
Íslenskir dómarar dæma í Sambandsdeild Evrópu á fimmtudag.
Í leik frá FC Pyunik Armeníu og FK Bodø/Glimt frá Noregi í þriðju umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu verður Helgi Mikael Jónasson með flautuna. Honum til aðstoðar verða Egill Guðvarður Guðlaugsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Jóhann Ingi Jónsson verður fjórði dómari.