Vestri sektaður
Aga- og úrskurðarnefnd ákvað á fundi sínum þann 8. ágúst að sekta knattspyrnudeild Vestra, um 100.000 kr. vegna opinberra ummæla þjálfara Vestra.
Að mati framkvæmdastjóra var með opinberum ummælunum vegið að heiðarleika og heilindum dómara í leik ÍA og Vestra í Lengjudeild karla, þann 16. júlí sl.