Úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna 2023
Úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna fer fram á Laugardalsvelli föstudaginn 11. ágúst þar sem Víkingur R. mætir Breiðablik.
Miðasala fer fram á tix.is þar sem hægt verður að kaupa miða annars vegar á svæði Víkings R. og hins vegar á svæði Breiðabliks.
Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir 16 ára og yngri og 2000 kr. fyrir 17 ára og eldri.
Tengill á miðasölu fyrir stuðningsmenn Víkings R.
Tengill á miðasölu fyrir stuðningsmenn Breiðabliks.
Á kynningarfundi fyrr í dag voru dómarar leiksins tilkynntir:
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Aðstoðardómarar: Ragnar Þór Bender og Patrik Freyr Guðmundsson
Fjórði dómari: Soffía Ummarin Kristinsdóttir
Eftirlitsmenn: Ólafur Ingi Guðmundsson og Þórður Ingi Guðjónsson
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá kynningarfundi sem haldin var í höfuðstöðvum KSÍ fyrr í dag