Moli heimsækir Vestfirði
Moli heldur áfram ferðalagi sínu um landið með verkefnið "Komdu í fótbolta með Mola". Næsta svæði sem Moli heimsækir eru Vestfirðir.
Þriðjudaginn 8. ágúst mætir Moli á Vestfirði og byrjar hann á að heimsækja Ísafjörð klukkan 12:00. Börn á öllum aldri eru velkomin á æfingu hjá Mola.
Hingað til hefur Moli heimsótt 46 staði um allt land og hitt þar fyrir rúmlega 1200 börn.