Miðasala á úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna
Miðasala á úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna þar sem Víkingur R. mætir Breiðablik hefst á morgun, þriðjudaginn 1. ágúst klukkan 12:00.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli föstudaginn 11. ágúst, leikurinn hefst klukkan 19:00 en hann verður einnig í beinni útsendingu á RÚV 2.
Miðasala fer fram á tix.is þar sem hægt verður að kaupa miða annars vegar á svæði Víkings R. og hins vegar á svæði Breiðabliks.
Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir 16 ára og yngri og 2000 kr. fyrir 17 ára og eldri.