Breytingar á lögum KSÍ
Breytingar á lögum KSÍ voru samþykktar á 77. ársþingi KSÍ þann 25. febrúar síðastliðinn. Breytingarnar voru staðfestar af framkvæmdastjórn ÍSÍ með bréfi 11. júlí.
Í bréfi framkvæmdastjórnar ÍSÍ er þó gerður fyrirvari um að ný grein 17.2 komi ekki til framkvæmda við stjórnarkjör og staðfestingu fulltrúa ÍTF og að breyting verði gerð á tilvitnuðu ákvæði.
Dreifibréf var sent á aðildarfélög KSÍ þar sem breytingarnar voru kynntar.