Ísland - Frakkland á EM á mánudag
U19 lið kvenna mætir Frakklandi í síðustu umferð riðlakeppninnar á lokakeppni EM í Belgíu á mánudag.
Leikurinn skiptir gríðarlega miklu máli enda á Ísland góðan möguleika á að komast áfram í undankeppni. Íslenska liðið er jafnt Spáni á stigum með 3 stig hvor og eru Frakkar efstir í riðlinum með 6 stig.
Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2 klukkan 18:30.