Sigur gegn Austurríki
A landslið kvenna vann 0-1 sigur gegn Austurríki í vináttuleik sem fram fór í Austurríki í dag, þriðjudag. Hafrún Rakel Halldórsdóttir skoraði sigurmark Íslands á 90. mínútu leiksins eftir góðan undirbúning frá Hlín Eiríksdóttur.
Framundan hjá A landsliði kvenna er Þjóðadeildin sem hefst í september. Þann 22. september tekur Ísland á móti Wales á Laugardalsvelli í fyrsta leik liðsins í keppninni.